Beiðni kom um fleiri myndir svo að auðvitað setjum við inn fleiri myndir. Þær eru af okkur þar sem við sinnum viðskiptum í dag og í gær. Eins og sjá má á einni myndinni þá fást nauðsynjavörur í ýmsum stærðum 🙂
Það hefur rignt í allan dag en við látum það ekki á okkur fá.
Af síðustu myndinni að dæma sýnist mér að starfsmannavelta á ónefndu hóteli sé með ágætum… ég held að þetta sé sama stúlkan og var að störfum í byrjun janúar á þessu ári.
Það er nauðsynlegt að geta fengið nauðsynjavörur að réttri stærð. Ég er líka mikill aðdáandi munnskols í 2 L brúsa. Þeira kunna þetta Kanarnir.
Náði pabbi að hlusta á heila sögu þarna meðan þú sinntir viðskiptum?
Heyrðu hann er búin að ná mér í sögunni, ég hlustaði á leiðinni út en hann bara í mollunum hahaha 🙂