Nú er barasta að koma að því, því á morgun fljúgum við á vit ævintýranna 🙂 Næstum búin að pakka, bara tannburstar og svoleiðis eftir. Ég hef örugglega pakkað allt of miklu að vanda en það á eftir að koma í ljós. Ég er með veðrið í Orlando á skjánum hjá mér og núna í þessum töluðu orðum er klukkan 18:47 að staðartíma og 29° hiti og sól. Hefur verið að rigna svolítið að undanförnu en við látum það ekki á okkur fá. Næsta færsla verður vonandi á morgun eða þá hinn og þá frá Orlando, kannski færi ég inn í Keflavík kemur í ljós. En þar til næst…. guten nacht 😉
Mánaðarskipt færslusafn fyrir: september 2007
Ekki á morgun heldur hinn
Eins og dóttir mín benti mér á í ummælunum með síðustu færslu hef ég ekki staðið mig í að skrifa færslur. Síðan 11. september þá hefur nú eitt og annað drifið á daga mína. Fyrir utan vinnu og allt sem því tengist, þá varð hún Edda mín 21 og við fórum á afmælisdaginn hennar í dekur til hennar Jóhönnu 😉 Um kvöldið komu svo mamma og pabbi í heimsókn og færðu okkur hjónum blóm í tilefni af silfurbrúðkaupinu, ohh… mér finnst ég bara verða gömul á að skrifa þetta en svona er nú lífið. Edda fékk líka blóm og fallega mynd. Í gær var Edda svo með „eighties“ partý fyrir vinkonur sínar, hún skreytti Skipholtið með myndum frá þessum tíma og var með tónlist þessa tímabils. Svo voru þær klæddar samkvæmt tímabilinu, grifflur, legghlífar, sítt að aftan og herðapúðar, hefði verið gaman að fá að taka þátt en þetta var ekki mitt partý 🙁 Ég fékk þó að hjálpa smá við undirbúngingin, gerði kartöflurétt og svona. En nú eru s.s. tveir dagar í síðbúnu brúðkaupsferðina eða þannig og tími til farinn að taka fram töskurnar og pakka einhverju niður. Maður veit ekki alveg hvað maður á að taka með sér, yfirleitt tekur maður allt of mikið. Við höfum verið að velta fyrir okkur hvort við eigum að nenna að taka viðhafnarklæðnað fyrir eina formlega kvöldmatinn á skipinu eða panta okkur bara á steikhúsinu um borð. Við höfum ekki prófað það svo að það verður örugglega ofan á. Við fljúgum s.s. út á þriðjudaginn og verðum í Orlando fram á föstudag er við höldum til Canaveral höfða og tökum þar „Sovereign of the Seas“ sem má þýða „Einvaldur hafsins“. Með honum siglum við á vit ævintýranna á Bahamaeyjum, nánar tiltekið til Nassau og Coco Cay sem er einkaeyja skipafélagsins. Eftir að hafa farið í þessa ævintýraferð verðum við svo í Orlando fram á miðvikudag. Ekki hefur verið ákveðið hvað við gerum í Orlando en það er ekki hægt að láta sér leiðast þar, þannig að ég hef littlar áhyggjur að við gerum það. Þeir sem hafa áhuga á að fylgjast með halda bara áfram að lesa þessa vefdagbók, því ég ætla að skrifa færslu á hverjum degi, vonandi tekst sú áætlun 😉 En nú aftur til Íslands, því í kvöld ætla foreldrar mínir að koma til okkar og borða lambalæri. Það mætti halda að við kynnum ekki að elda annað, því við bjóðum þeim regluga í læri en það er bara svo gott „íslenska lambakjötið“ eins og Guðni mundi segja það. Until next time, veriði blessuð…
25 ár í dag
þá er stóri dagurinn í lífi okkar hjóna runninn upp, 25 ára brúðkaupsafmælið, silfurbrúðkaup heitir það víst. Við ætlum að fara öll saman út að borða á eftir á Caruso, bara skemmtilegt. Veðrið hefur verið gott í dag örugglega í tilefni dagsins eða ég held því fram alla vega 🙂
Nú rúmum tveimur tímum seinna komum við heim södd og sæl. Yndislegt að gera sér svona glaðan dag saman öll fimm. Ég set inn myndir frá deginum fræga fyrir 25 árum, ung og sæt (eiginlega eins og unglingar) og svo mynd sem tekin var í Noregi í fyrra og þá erum við bara sæt 🙂


