25 ár í dag

þá er stóri dagurinn í lífi okkar hjóna runninn upp, 25 ára brúðkaupsafmælið, silfurbrúðkaup heitir það víst. Við ætlum að fara öll saman út að borða á eftir á Caruso, bara skemmtilegt. Veðrið hefur verið gott í dag örugglega í tilefni dagsins eða ég held því fram alla vega 🙂
Nú rúmum tveimur tímum seinna komum við heim södd og sæl. Yndislegt að gera sér svona glaðan dag saman öll fimm. Ég set inn myndir frá deginum fræga fyrir 25 árum, ung og sæt (eiginlega eins og unglingar) og svo mynd sem tekin var í Noregi í fyrra og þá erum við bara sæt 🙂

11_9_brudkaup.jpg 11_9_brudkaup_11.jpg

11_9_tobii_groa.jpg

3 thoughts on “25 ár í dag

  1. Ég óska ykkur innilega til hamingju með þennan merka áfanga.
    Kveðja
    Sigga

  2. Það er nú margt búið að gerast í þínu lífi síðan 11. september og skrítið að það sé ekki komin niðurtalning í ferðina þar sem hún er á þriðjudaginn ;o)

  3. Er búin að vera vinna í því, kemur kannski bara í dag en það eru tveir dagar 🙂

Comments are closed.