Komin til Orlando

Jæja þá erum við komin til Orlando, réttara sagt þá komum við í gær. Við höfum í rauninni slappað af og reynt að ná rauða litnum af húðinni aðeins niður. Í gærkvöldi gengum við út á International Drive og fengum okkur að borða, við fórum á Sizzler og fengum okkur steik, namm…. Það var mjög gott að ganga úti í góða veðrinu, okkur fannst það vera þægilega heitt. Í dag sváfum við bara lengi og ætlum núna að sinna síðustu viðskiptunum og gera eitthvað skemmtilegt 😉 Þess má geta að veðrið er æðislegt, fullt af fólki farið að sleikja sólina við sundlaugina en ég held að við sleppum því í dag. Það er 30 stiga hiti og sól…..

2 thoughts on “Komin til Orlando

  1. Að „sleikja“ sólina er kannski ekki svo ráðlegt þar sem „yfirborð“ hennar, það er ljóshvolfið, er um 5700°C heitt.

Comments are closed.