Aftur til San Francisco

Við leyfðum okkur að kúra aðeins lengur í morgun og lögðum ekki af stað fyrr en upp úr 9. Við vorum svo heppin að leið okkar skaraðist ekki við 100.000 áhorfendur að hinum árlega Nascar kappakstri  sem fram fer í Vegas. Við  ókum sem leið lá í dauða dalinn, Death Valley, þar sem getur að líta ótrúlega fegurð í landslagi eins og t.d. við Zabriskie Point og einnig ókum við þarna 100 fetum undir sjávarmáli. Við héldum svo áfram upp í fjöllin og fórum hæst í tæp 8.200 fet í Deadman og Conway skörðum. Þarna er  allt á kafi í snjó þó svo að göturnar séu auðar en allir þvervegir yfir Yosemite þjóðgarðinn eru lokaðir utan sveitaveg nr. 88 sem við ökum á morgun. Við erum núna á ágætu Best Western hóteli í smábæ sem heitir Topaz og er með gott netsamband.  Við erum komin aftur inn í Nevada og það var ekki að sökum að spyrja  þó svo að bærinn telji ekki nema svona 30 hús þá skartar hann 2 stórum hótelum og að sjálfsögðu spilavíti. Við eigum svo ekki eftir nema 4 og hálfan tíma í akstri til San Francisco svo við ættum að eiga léttari aksturs dag á morgun en við ókum rúmar 400 mílur í dag.

4 thoughts on “Aftur til San Francisco

  1. Keli spyr hvort að þið hafið rekist á Leiftur McQueen í Vatnskassavin…það er víst bara þarna handan við hornið 🙂

  2. Nei við hittum ekki á hann, Leiftur McQueen var eitthvað vant við látinn eins og allar stjörnurnar í þessari ferð okkar 😉

Comments are closed.