Í helgarlok

Jæja nú er komið að helgarlokum og okkur hefur tekist að klára það sem við ætluðum að klára um helgina. Æðislega skemmtilegt afmæli hjá Önnu Leu í Keflavíkinni, fullt af fólki og mikið skrafað og sungið. Næsta fimmtugsafmæli á morgun hjá henni Jóhönnu á Reynimelnum og vonandi sjá fleiri úr hópnum sér fært að mæta 😉 Enn hvað með það, við tókum til í geymslunni í dag og hentum alveg helling af drasli, ég hef sagt það áður og segi það enn – mikið óskaplega tekst manni að safna miklu af drasli. Þeir sem hafa séð okkar yndislegu geymslu vita að það er ekki hægt að safna miklu í hana og þó. Hún liggur undir tröppurnar að efri hæðunum og er hvergi hægt að rétta úr sér nema fyrir utan hana, svona skotgrafarhernaður. Enn kannski þess vegna er nú auðvelt að safna og troða miklu inn í hana, sem aftur á móti gerir það að verkum að erfitt er að nálgast hlutina sem maður ætlar að nota í það og það skiptið. Í geymslunni eru m.a. 400 og eitthvað hljómplötur sem eru núna aðgengilegar ásamt fleiru verðmæti. Það er gott að hafa auðvelt aðgengi að plötunum, því hann Þorvaldur pantaði sér plötuspilara frá Ameríkunni um daginn. Plötuspilarinn er nefnilega þannig úr garði gerður að hægt er að tengja hann við tölvu, svo að allar gömlu plöturnar verða bráðum á tölvutæku formi. Nýtt hobbí fyrir minn elskulega eiginmann, alltaf gott að hafa nóg að gera eða þannig. Ég nýt nú góðs af þessu öllu saman, fæ kannski bara fleiri lög í ipodinn minn 🙂 Í dag var þáttur hjá Opruh um fólk sem býr mjög smátt, ein kona bjó í 25 fm og par með lítið barn í 26 fm og var bara hamingjusamt í þessum þrengslum. Ég hugsaði með mér þegar ég horfði á þennan þátt, að ef ég byggi í svona litlu rými þá myndi ég pottþétt ekki safna drasli og væri kannski bara enn hamingjusamari eða hvað. Ég er mjög glöð og hamingjusöm með mína 100 fm og erum við ekkert á leiðinni að fara héðan, þó svo að það væri gott að vera með aðgengilegri geymslu 😉 Enn „heima er best“ og er ég mjög sammála því orðatiltæki, enda eyði ég miklum tíma hér heima og finnst hvergi betra að vera. Nóg með það nú hefst ný vinnuvika með nýjum tækifærum, styttist í ferðina okkar júhúu (var ég ekki að enda við að segja að heima væri best, gamla orðin tvísaga). Verð vonandi mjög dugleg að færa inn færslur en þangað til næst, verið í stuði með guði 🙂

5 thoughts on “Í helgarlok

  1. Spurning hvort að gamli komist nokkuð með þér í ferðina… það á eftir að taka sinn tíma að fara í gegnum plöturnar og koma þeim á stafrænt snið.

  2. Ja heldurðu, spurning hvort hann geti kannski bara tekið sér smá frí á meðan 🙂

  3. Hey ég er með brilljant lausn á þessu ég fer bara með þér í þessa ferð og þá getur pabbi alveg einbeitt sér að þessu ;o)

  4. Heyrðu það væri nú bara æðislegt, þú sérð um að keyra haha….

Comments are closed.