Nýr dagur í New York

Jæja nú er gamla bara loksins orðin 45 eða þannig, afmælisdagur okkar Bush runninn upp 🙂 Hvað skyldi karlinn eiginlega vera gamall hahaha…. Nóg um það í gær fengum við rútuferðir fyrir allan peningin ef svo má segja, við fórum nefnilega í þrjár ferðir. Við byrjuðum daginn á að fá okkur snarl hér í næsta húsi hjá einhverjum kínverja að ég held sem sníkti af okkur íslenskan 50 kall en það er önnur saga. Eftir að hafa fengið okkur jógúrt, ávexti og fleira fórum við að stöðinni þar sem Gray Line er en það er bara nokkrum skrefum frá hótelinu. Við fórum í Down town hringinn og fórum út hjá Ground Zero og gengum um svæðið og skoðuðum okkur um, maður skilur ekki alveg umfangið á þessu öllu þarna eða hvernig í ósköpunum einhverjum hafi dottið þessi vitleysa í hug, að fljúga stórum farþegaþotum inn í þessi annars hrikalega stóru turna. Heimurinn var ekki alveg samur eftir en við héldum samt áfram göngunni, þó að maður hafi orðið smá hrærður eftir þetta. Við gengum með ströndinni ekki sólbaðs að Battery Park og sáum raðirnar í Frelsistyttu og Ellis Island túranna og ákváðum að við ætluðum ekki að taka þátt í þeirri vitleysu 😉 Við héldum rútuferðinni áfram en skiptum fljótlega um og fórum í Brooklyn rútuna. Eftir að hafa komið okkur fyrir og svona þá fór að rigna, við í regnslár sem við fengum hjá rútufyrirtækinu og það rigndi eiginlega mest alla Brooklyn ferðina, þannig að maður var heldur blautur eftir þetta. Við skreyddumst loks heim rennandi blaut eftir að hafa klárað Down town hringinn og ég fór í heitt bað til að ná upp smá hita. Um kvöldið fórum við svo í night tour þeirra heimamanna og það var sko alveg þess virði að sjá NY að kvöldlagi. Sú ferð tók 2 tíma og vorum við komin heim á hótel á miðnætti. Núna erum við að hugsa um að fara Harlem hringinn og erum við þá búin að fara allar þær ferðir sem okkur stendur til boða. Við getum reyndar farið í siglingu m.a. til að skoða fossana hans Ólafs sem er b.t.w. dani þó að við íslendingar viljum eigna okkur hann 🙁 Við stefnum svo á þyrluflug, hvort sem er í dag eða á morgun fer eftir skyggni. Meira seinna….. 😉

4 thoughts on “Nýr dagur í New York

  1. Hæ Gróa. Tilhamingju með afmæli i dag. Bara so thu veist þá er Busch 62 ára.

  2. til hamingju með afmælið darling :)… skemmtu þér mest og best i stóra eplinu… væri alveg til í að rekast á þig þar eins og á Flórída… hehehe 🙂

    kveðja
    Kristín Addat

  3. Dear Groa,

    I hope you had a fantastic birthday yesterday. It is a great honor to have you and Tobbi in the States for this milestone.
    Laura and I would really love to have you over for a dinner but unfotunatly I am in Japan for the moment so we will have to get together later.

    Best wishes,

    George

  4. Hæ hæ Til hamingju með afmælið 🙂 Gaman að þú skildir fá kveðju frá George sjálfum ha ha. Hafðu það gott og skemmtið ykkur vel. Kv Settablomm. 😉

Comments are closed.