Key West að baki

Nú erum við komin til Cutler Ridge í úthverfi Miami og erum á Best Western hóteli. Við vorum ekki í sambandi við umheiminn í gær og því miður ekkert hægt að færa inn færslu á síðuna. En núna erum við með gott samband, því gamla “besta vestrið” eins og sonur minn mundi sennilega kalla það stendur sig með prýði. Ferðin til Key West gekk vel en það var um langan veg að fara u.þ.b. 120 mílur frá Floridia City sem er síðasta borg áður en farið er niður á rifin og yfir 45 brýr á leiðinni. Útsýnið er mjög fallegt alla leiðina, fólk að veiða bæði frá landi og á bátum og svo fjölbreytt fuglalíf. Við komum til Key West um klukkan 17 og byrjuðum á að keyra hring um rifið áður en við tékkuðum okkur inn á hótelið eða reyndum en enduðum á glænýju hóteli hinum megin við götuna. Við fengum herbergi á sitt hvorri hæðinni en það spillti ekki fyrir, mjög nýtískulegt hótel meira segja með sængum 🙂 Eftir góðan nætursvefn héldum við niður í gamla hlutann og skoðuðum okkur um við höfnina og keyptum smá minjagripi m.a. þurrkaðan krókódílahaus, sem að börnin á Birkilundi fá að rannsaka þegar heim verður komið. Eftir tveggja tíma göngu keyrðum við um, skoðuðum hús Ernest Hemmingway og syðsta hluta Bandaríkjanna. Við héldum svo sömu leið til baka áfram yfir brýrnar 45 í átt að hótelinu. Morgundagurinn hefur ekki enn verið skipulagður en það er moll hinum megin við götuna sem hægt væri að kíkja í og svo er nú alltaf hægt að fara á krókódílaslóðir 😉 Hér á eftir koma svo nokkrar myndir sem við höfum tekið það sem af er ferðarinnar eða pínulítill hluti af þeim, njótið vel og heyrumst svo aftur á morgun með fleiri sögur úr henni Ameríku 😉

Á leið til Orlando Þreyttir ferðalangar

Furðulegt farartæki Edda og Tobbi á Key West

Furðuverur

Við sjö mílna brúna Tobbi og bíllinn

4 thoughts on “Key West að baki

  1. Hæ hæ

    Sitjum hér við eldhúsborðið Guðrún, Valur, amma Sigga, Sigga Þóra, Hanna Lilja og Guðrún Filippía.
    Úti er grenjandi rigning og rok og lítið um sólböð en þó allir löðrandi í sólarvörn…just in case.
    Eldri borgararnir og Guðrún eldri ætla að skella sér í bíó seinnipartinn í dag til að sjá Brúðgumann og er mikill spenningur yfir því.

    Allir biðja mjög vel að heilsa.
    Stórfjölskyldan að Minna Mosfelli

  2. Hæ öll sömul gaman að frétta af ykkur það er ekki laust við það að maður öfundi ykkur “smá” við tölum nú ekki um siglingarnar það er æðislegt að vera út á sjó. Haldið áfram að njóa þess að vera saman á þessu flakki. Sólar kveðja Steina Valdi og Bjössi

  3. Hej. Godt at höre at i er kommet godt fram. Ja, eg segði eins og hun Steina að maður öfunda ykkur smá. Gaman að fá að fylgjast með ykkur. Ha´det nu alle sammen godt. Og nu má du endelig önske din far tillykke með föselsdagen.Sólfríð og fjölskylda. PS við standið okkur vel i leikf. eg og Edda.

  4. Já við erum feitt að standa okkur í leikfiminni…ég segi nú bara there better be a gym á Best Western!!!

Comments are closed.