And life goes on

Nú er allt orðið eins og það á að vera hér á Miðbrautinni. Ég orðin hress, farin að vinna og í ræktina, gott að geta farið aftur í sína eðlilegu rútínu 🙂 Nú er bara bjart fram undan eða þannig, þrátt fyrir krepputal og verðhækkanir þá held ég að lífið sé bara gott og maður eigi að vera bjartsýnn. Sumarið framundan sem vonandi verður hlýtt og gott, með rigningu í lágmarki og svo er nú daginn farið að lengja. Við mæðgur að hefja fimmtu viku í seinna átaksnámskeiðinu í World Class hjá henni Báru og komið að því að fara að haska sér í að halda matardagbók. Ég hef verið í einhverjum svona sætindaferli síðan ég kom heim frá Ameríkunni og í síðustu viku var lystinn ekki upp á marga fiska en þetta er allt að koma. Vigtun og mæling á fimmtudag svo er bara sjá hvort maður hafi náð markmiðum sínum 😉 Framundan er svo margt skemmtilegt að gerast, m.a. förum við hjónin á Laugarvatn í 30 ára reunion helgina 25.-27. apríl og hlakka ég mjög mikið til að hitta gengið. Versta er að ég missi af síðasta tímanum á átaksnámskeiðinu sem á að vera í Laugum með spinning, baðstofuferð og fleiru, þess má geta að ég missti líka af þessu á síðasta námskeiði, var einhver staðar annars staðar á hnettinum 🙁 Ég virðist alltaf að vera gera eitthvað annað þegar svona stendur á, það er ekki eins og ég sé alltaf að skemmta mér eitthvað en svona er þetta. Jæja ætli ég hafi þetta nú nokkuð lengra að sinni svo þar til næst…. blesssssss

Heilsufarið að batna

Jæja nú held ég barasta að ég sé að ná heilsu, hef ekki mælt mig núna seinni partinn, er að verða eins og meiri háttar veðurathugunarstöð, svo ég veit ekki alveg hitastigið á konunni. Ég vona að ég sé orðin hitalaus svo að ég geti farið að lifa eðlilegu lífi, fara í ræktina, sækja vinnu og svona en mikið hryllilega er þreytandi að vera lasin 🙁 Ég horfði á CSI NY í dag og náði að klára alla þætti heimilisins. Svo þegar Edda kom heim úr vinnunni hjálpaði hún mér aðeins með ipodana mína, ég á alltof marga og hef átt í erfiðleikum með að setja inn á þá. Eftir að hafa skoðað þetta settum við upp facebook fyrir mig, gamla er bara komin með facebook. Það má segja að facebook sé fyrir fólk sem hefur ekkert að gera og þess vegna af því að ég hef ekkert haft neitt að gera í veikindunum þá dundaði ég mér við að skoða og gerast vinur og svona. Skemmtilegt en ég náði að tengjast gömlum vini, henni Söru Theódórs sem ég vann með á Litlubrekku og Mánabrekku í denn, bara skemmtilegt… svo núna erum við vinir á facebook 😉 Svo núna hef ég eitthvað til að gera í tölvunni eftir að hafa fært inn færslur hér eða þannig

Veikindavæl

Nú ligg ég hér heima með einhverja leiðinda flensu, þ.e. í dag og í gær og hundleiðist 🙁 Er búin að horfa yfir mig á CSI og á sjónvarp yfirleitt, fæ fljótlega hausverk af því og hlusta þá bara og sofna á endanum. Reyni að lesa en það fer á sama veg, hausverk og svo dofnar hendur, skil ekkert í þessu. Verð að fara að hrista þetta af mér áður en ég verð kreisí, kemst ekki í ræktina eða meðal fólks yfirleitt. En hvað með það verð kannski bara að reyna að kíkja á internetið, skipuleggja sumarfrí eða eitthað… 😉