Nagladekur

Við mæðgur vorum að koma úr nagladekri, litun og plokkun frá Jóhönnu. Þvílíkur lúxus að fara og fá svona góða þjónustu. Mættum þrjár, ég, Edda og Björg í morgun og eyddum svo góðri stund hjá Jóhönnu eða svona fram eftir degi. Við fórum út glaðar og ánægðar með flottar neglur og snyrtar augabrúnir. Nú er bara um að gera að sitja, dást að nöglunum og æfa konunglega vinkið eða þannig. Spurning hvort að hægt verði að fara út að hjóla í kvöld! 🙂

2 thoughts on “Nagladekur

  1. Við erum bara flottastar 😉
    Svo er bara að finna réttu sandalana fyrir hinar konunglegu tásur..
    Kveðja, Björg

  2. Þá er bara að kíkja í „Friis and Company“ uppáhaldsbúðina mína, færð örugglega eitthvað fyrir konunglegu tásurnar 😉

Comments are closed.