Desember með jólalögum og fleiru skemmtilegu

Jæja þá er komin desember og við mæðgur búnar með jólakortin og baksturinn, ja næstum alveg. Förum á morgun eftir vinnu til mömmu í laufabrauðsbakstur en við ætlum að baka með henni og Guðnýju, árlegur siður sem ekki má sleppa. Um síðustu helgi bökuðum við fyrst sörur með mömmu og Diddu og svo á sunnudaginn bökuðum við fimm sortir eða svo mæðgurnar, ótrúlega duglegar bara 😉 Við erum líka búnar að gera jólkortin, það er alltaf gaman þegar búið er að gera þau. Svo á eftir að skrifa hersinguna en það bíður betri tíma. Mín er búin að liggja með bólgnar vöðvafestingar í mjöðmini ekki nógu gott en á batavegi. Stína mín nuddari reddaði kellingunni að vanda og svo er bara að vera dugleg að hreyfa sig og teygja, kemur bara…. Nú er að hefjast vinaleikur í vinnunni ótrúlega spennandi og skemmtilegur leikur, get ekki upplýst nokkuð núna því að vinurinn minn má ekki fá að vita nokkuð fyrr en á föstudaginn kemur, þá upplýsum við um vininn, bara skemmtilegt eða þannig 🙂 Tengdó er hjá okkur núna um helgina, Þorvaldur er að baka skonsur og eitthvað gott svo ég verð að hætta núna og fara að blanda geði.. heyrumst fjótlega.

2 thoughts on “Desember með jólalögum og fleiru skemmtilegu

  1. Haha, mér fannst fyndið að sjá að þið ætlið að horfa á National Lampoons – því hér á bæ er það liður í aðventunni að hlæja yfir þeirri mynd. Svo horfum við alltaf líka á Love Actually því hún minnir mann á hvað þessi skrýtna veröld getur verið æðisleg – og svo á Þorláksmessu horfum við á Nightmare Before Christmas (þó að Kaninn myndi auðvitað horfa á hana 24 des). Fyndið að bíómyndir séu orðnar hluti af aðventunni manns ;o)
    Gaman að skoða myndirnar frá USA og svakalega er flott nýja lúkkið á síðunni!

    Þar til næst… :o)

  2. Takk fyrir kveðjuna, gaman að heyra að það sé fleiri en ég sem sé með svona fasta liði á aðventunni. Mér finnst Love Actually góð en það hefur ekki komið hefð á hana hér en aftur á móti kíkjum við líka oft á Home Alone á þessum tíma. Sonur minn horfir svo alltaf á ákveðna James Bond mynd á aðfangadag, svona eru nú hefðirnar oft sérstakar hjá okkur mannfólkinu 😉

Comments are closed.