Jæja nú er helgin liðin og ég hálfnuð með sumarfríið. Þetta var bara góð helgi eins og alltaf, eru helgar ekki þannig, jákvæðnin að drepa mann núna enda sumarfrí í gangi. Ég er að lesa bókina „Leyndarmálið“ og er bara nokkuð jákvæð eftir að hafa lesið það sem ég er búin með. Ég held að það sé bara mikið til í þessu með lögmál aðdráttaraflsins, þ.e. að ef þú ert jákvæður þá dregur þú að þér jákvæða hluti. Hvað sem því líður þá áttum við yndislegan dag í dag, við fórum nefnilega í skírnarveislu hjá lítilli frænku Þorvaldar og barnanna minna. Hún var skírð nafninu Guðrún Filippía í höfuðið á ömmum sínum. Það var gaman að fá að taka þátt í þessum degi með fjölskyldunni á Sogaveginum og hitta skyldfólkið. Til hamingju Gísli, Hanna og Keli. 😉
Lífið hefur gengið sinn vanagang um helgina, alltaf sama rútínan, fara og versla inn og svona. Á laugardaginn keyptum við okkur nýja þvottavél, auðvitað í Elkó, Electrolux geðveikt góða og er ég búin að vera þvo og þvo, rosalega óhreint tau á heimilinu. Gamla góða AEG þvottavélinn okkar fór í Skipholtið og á vonandi eftir að endast þeim skötuhjúum vel. Jæja ég er að spá í að hætta þessu í bili og fara að lesa eða eitthvað skemmtilegt. 😉
Ég legg til að þú prófir að gera e-ð leiðinlegt þar sem mér finnst þú alltaf vera að gera e-ð skemmtilegt. 🙂
Er Edda hætt að blogga eða byrjðai hún aldrei? 😉
Það er bara spurning um hvort ég hafi hæfileika í að gera eitthvað leiðinlegt, eða bara nenni því ekki.. 😉
Veit ekki með Eddu og bloggið en hún er stöðugt að komenta hjá mér 🙂