Legið í leti eða næstum því

Ég held ég hafi verið með smá fráhvarfseinkenni frá sólinni í dag, bara ský þar til seinnipartinn. Ég gerði nánast ekki neitt til hádegis, ég er í sumarfríi, byrjaði þó á bók sem ég hef mjög lengi ætlað að byrja á. Bókin heitir „Þriðja táknið“ og er eftir skólasystur mína úr Való forðum dag, hana Yrsu Sigurðardóttur. Mér líst bara nokkuð vel á það sem ég hef lesið sem er þó nokkur slatti miðað við minn lestrarhraða. Jú ég gerði tvennt af því sem ég ætlaði mér að gera í dag eða næstu daga. Fyrst þá spretti ég upp tveimur buxum sem móðir mín saumameistarinn ætlar að hjálpa mér að breyta í pils, endurnýting eins og hún gerist best ekki satt. Í annan stað þá tókum við sonur minn til í draslskúffunum, við eigum eiginlega þrjár. Það var nú satt að segja hann sem dreif mig í þetta verkefni, skúffurnar hafa farið mjög í taugarnar á honum og kannski mér líka. Maður fann aldrei neitt í þeim, eða er það ekki þannig farið með draslskúffur. Nú eigum við aftur á móti enga skúffur með drasli í, heldur vel skipulagðar skúffur þar sem allt er sýnilegt eða þannig. 🙂
Ég verð nú að minnast á kvöldmatinn okkar, við útbjuggum nefnilega guðdómlega kínverska súpu með kjúklingaívafi namm namm, ég fæ vatn í munninn við tilhugsunina. 😉
Jæja ekki meira í dag því nú ætla ég bara að lesa meira í bókinni minni góðu.

4 thoughts on “Legið í leti eða næstum því

  1. Hva er bara eldaður góður matur þegar ég er í burtu??? Neeeeeiiiiiiiii djók 😉

  2. Auðvitað, þegar kötturinn er í burtu þá leika mýsnar sér er það ekki 😉

  3. Bíddu ég stóð í þeirri meiningu að pabbi væri kötturinn.

  4. Ég tók bar svona til orða, auðvitað er hann kötturinn. Þess vegna er alltaf eitthvað gott að borða þegar hann fer eitthvað er það ekki haha… 😉 En við elduðum súpu, ég vissi ekki að þér þætti hún sérstaklega góð.

Lokað er á athugasemdir.