Dagurinn í dag er bara búin að vera ansi ljúfur. Við höfum að vanda staðið í smá viðskiptum, fórum með leigara í Kmart og komum með smávegis til baka af varningi. Síðan höfum við gengið hér um nágrennið og skoðað hvað er í boði í hér. Á morgun ætlum við að vera eins og túristar og fara í skoðunarferð með báti á hjólum, heitir „Duck tours“. Eftir að hafa lokið við ferðina ætlum skoða okkur betur um og taka svolítið af myndum. Kannski koma bara myndir á síðuna eftir daginn… hver veit. En núna er ég að hugsa um að fara að góna á sjónvarp, fara í sturtu og nota jafnvel sloppinn sem fylgir herberginu og var lagður á rúmið þegar herbergisþernan bjó um okkur fyrir nóttina, þvílíkur lúxus 😉 Ég hef verið að tala við Þorvald í gegnum netsímann meðan ég pikka inn þessa færslu, tæknin er svo frábær eða þannig. Þar til næst bye bye
Mánaðarskipt færslusafn fyrir: nóvember 2007
Boston here we come
Jæja nú erum við Helga Lotta barasta komnar til Boston. Eftir næstum því 6 tíma flug lentum við á Logan Airport rétt fyrir utan Boston um klukkan 19 í gærkvöldi. Eftir að hafa komist í gegnum vegabréfaskoðun og pikkað upp töskurnar, fundum við okkur leigubíl sem flutti okkur á Hotel Lenox. Mjög gott hótel, rúmgóð herbergi þannig að það ætti ekki að væsa um okkur hér þessa daga í Boston. Við ætlum aðeins að sinna viðskiptum í dag og kannski skoða okkur um. Það er spáð roki og jafnvel rigningu seinni partinn (alltaf jafn heppin með veður eða þannig) svo að við förum kannski bara í mollið sem við fundum og okkur var sagt frá. Nánar síðar… auf wiedesehen 🙂