Seinni hluti fyrsta dagsins

Eftir að hafa sinnt smá viðskiptum fórum við og tékkuðum okkur inn á ráðstefnuna og fengum öll gögninn. Við kíktum á svæðið svona til að átta okkur á staðháttum, það þarf greinilega að mæta snemma til að lenda ekki í vanda að ná bílastæði og svona.Við hittum nokkrar íslenska starfsfélaga sem voru í sömu erindagjörðum. Við héldum heim á leið til að fara í gegnum bæklinginn og finna þá fyrirlestra sem vekja áhuga okkar 😉 Mikið var hlegið og greinilegt var að þreytan var pínu farin að segja til sín því að athyglisbresturinn var alveg í hámarki. Við skutluðumst svo í Steak´n´shake og fengum okkur djúsí burger. Þegar heim var komið héldum við áfram að skipuleggja og fórum óvenju snemma að sofa eftir að hafa vakað í 16 tíma 🙂


  
  
  
  
  

3 thoughts on “Seinni hluti fyrsta dagsins

  1. Gaman að geta fylgst með ykkur stelpur mínar. Það fer greinilega vel um ykkur, njótið alls!! Vonandi fáið þið heilmikinn fróðleik með í farteskið með djassi af skemmtisögum 😉

  2. Gaman að fylgjast með ykkur!

    Treysti því að þið hafið fengið ykkur shake með “oreals” fyrir gamla! 🙂

  3. Haha Kristján slepptum öllu veseni 😘
    Anna, já við erum sko að fræðast og skemmta okkur, mikið hlegið 😍

Comments are closed.