Nú er komið að því að fara taka sig til og losa herbergið og halda heim á leið. Við eigum að losa herbergið í síðasta lagi um 11, síðan eigum við að fljúga héðan klukkan 19 að staðartíma og eigum að vera komin tveim tímum áður. Ætlunin er að skoða okkur um, fara í minigolf og eyða tímanum í eitthvað uppbyggilegt og skemmtilegt. Við heyrmst svo bara á Íslandi 🙂
Greinasafn fyrir flokkinn: Flórída 2007
Komin til Orlando
Jæja þá erum við komin til Orlando, réttara sagt þá komum við í gær. Við höfum í rauninni slappað af og reynt að ná rauða litnum af húðinni aðeins niður. Í gærkvöldi gengum við út á International Drive og fengum okkur að borða, við fórum á Sizzler og fengum okkur steik, namm…. Það var mjög gott að ganga úti í góða veðrinu, okkur fannst það vera þægilega heitt. Í dag sváfum við bara lengi og ætlum núna að sinna síðustu viðskiptunum og gera eitthvað skemmtilegt 😉 Þess má geta að veðrið er æðislegt, fullt af fólki farið að sleikja sólina við sundlaugina en ég held að við sleppum því í dag. Það er 30 stiga hiti og sól…..
Coco Cay
Í dag vöknuðum við snemma og vorum mætt út á dekk þegar skipið lagðist fyrir akkerum við Coco Cay. Síðan fórum við í morgunmat en tókum svo bát yfir á eyjuna. Eyjan er nú ekki mjög stór, svona eins og 3-4 Gróttur en hefur upp á margt að bjóða. Við höfðum ákveðið að sigla á kajökum og snorkla og áttum kajaktíma klukkan 11. Áður fórum við á strámarkaðinn og kíktum á varninginn hjá eyjaskeggjunum. Við vorum mætt tímanlega fyrir kajakróðurinn og undirrituðum skjal sem firrir skipafélagið allri ábyrgð á hugsanlegum skakkaföllum. Síðan fundum við björgunarvesti og festum þau á okkur og biðum eftir að vera kölluð í róðurinn. Eftir smá leiðbeiningar var haldið af stað og róið í átt til hafs. Mjög fljótlega stoppaði fararstjórinn og sýndi okkur kuðung með krabba, krossfisk og benti okkur á að við gætum séð skötur sem við sáum þó ekki í róðrinum. Eftir að hafa róið í 1½ klukkutíma gengum við frá kajaknum, árum og vestum og héldum í hádegismat. Hann var borðaður á Captein Blackbirds, sem er grillstaður á eyjunni og gátum við valið um hamborgara, pylsur, kjúkling, rif og fleira góðmeti. Þegar við höfðum lokið við að matast héldum við í átt að snorklinu. Eftir að hafa fengið snorklgræjur sem samanstanda af munnstykkjum, gleraugum, froskalöppum og björgunarvestum, var okkur ekki til setunnar boðið. Við héldum niður á strönd og út á haf, syntum í átt að flugvélaflaki og þaðan að bátsflaki og nutum þess að sjá það sem fyrir augun bar. Við sáum fullt af alls kyns fögrum fiskum og þar komum við auga á skötu sem læddist eftir hafsbotninum. Við snorkluðum í u.þ.b. 1½ klukkutíma en þá var tími til komin að halda til skips. Hér erum við nú að ganga frá síðustu færslu í siglingunni en í kvöld er ætlunin að fara á sýningu í leikhúsinu, pakka niður og ganga frá töskunum, því þær verða að vera komnar fram fyrir miðnætti. Við eigum svo að fara frá borði um klukkan 9:15 en við erum með bleikan aðgang frá borði. Þess má geta að við höfum skipt um húðlit, úr hvítu (Þorvaldur úr næpuhvítu) í eldrautt 🙁