Auðvitað kíktum við líka á Goose Neck, ekki hægt að sleppa því. Alltaf gaman að sjá Colorado River liðast um þennan fallega stað. Ekki eru margir á ferli á þessum tíma árs og kannski minna út af einhverjum faraldri sem hefur verið að trufla ferðalög almennings.
Daily Archives: 15.04.2022
Monument Valley og Mexican Hat, Utah.
Í annað skiptið keyrðum við að Monument Valley en í þetta fórum við inn í dalinn og keyrðum um og skoðuðu okkur um. Veðrið spillti ekki sól og smá rok. Það er eins og að vera í gamalli kúrekamynd að keyra um Monument Valley og sjá þessi fjöll sem eiga engan sinn líkan. Við kíktum líka á Mexican Hat í leiðinni á hótelið. Við keyrðum líka að Four Corners en þar var búið að loka þanngi að það bíður morgundagsins.