Ferð til New York

Ferðin okkar hér til New York gekk bara vel. Við byrjuðum á að njóta veitinganna í Saga Lounge eftir að hafa sinnt vipskiptum á flugvellinum. Næst var nærri 6 tíma flug þar sem sumir sváfu að vanda og aðrir góndu á myndir sem í boði voru. Biðin í immigration var óvenju löng en þetta hafðist að lokum. Við vorum komin á Howard Johnson eða Hojo í Jamaica um kl. 9 á þessum fína rauða Toyota Camry sem við ætlum að þeysa á um sveitir New York. Nú verður svo viðskiptum sinnt og svo ætlum við til Stan og Söruh á morgun 😉

IMG_0019.JPG IMG_0017.JPGIMG_0018.JPG

3 thoughts on “Ferð til New York

  1. Við fylgjumst spennt með ferðasögunni og myndum!
    Biðjum að heilsa Stan og Söru 🙂

Comments are closed.