Nú erum við komin niður á strönd og veðrið er í kaldara lagi þessa stundina 🙁 Ferðin hingað gekk vel, við krúsuðum eftir I-4 niður að 275 við Tampa og svo niður til St. Pete. Við erum með tvær geðveikar íbúðir með öllu, já alls kyns tækjum til að auðvelda okkur dvölina og svo er útsýni af svölunum yfir Mexikóflóann, sem spillir að sjálfsögðu ekki fyrir. Við fórum og tékkuðum á Publix matvörubúð staðarins og keyptum hitt og þetta til að troða í andlitið á okkur og svo einhvern vökva til að skola því niður 😉 Við höfum ekki ennþá fundið líkamsræktaraðstöðuna sem auglýst er á netinu en við höfum fundið borðtennisborðið og svo er ströndin í öllu sínu veldi hér rétt fyrir neðan. Við munum eyða hérna næstu fimm dögum og ef ég þekki okkur rétt munum við ekki láta okkur leiðast. Það koma vonandi skemmtilegar sögur hér á síðuna innan skamms og kannski bara myndir, hver veit… Okkur er ekkert að vanbúnaði því við erum með gott internetsamband og allt svo einstaklega auðvelt svona gervihnattaöld 🙂
Fréttir frá Orlando
Nú koma smá fréttir af okkur héðan frá Orlando 🙂 Gormunum gekk vel að komast frá hinni ógurlegu immigration krumlu Bandaríkjamanna á mánudagskvöldið. Eftir að hafa verið spurð spurninga m.a. um tilgang ferðarinnar, gefið fingrafarasýnishorn og smælað í myndavélina var farangurinn sóttur og svo komu þau bara út. Flugið hjá þeim tók aðeins styttri tíma en hjá okkur en þau voru hálf þreytt eftir að hafa verið með hávaðasömum golfurum og grenjandi sænskum börnum í rúma 7 tíma. Við sóttum svo bílinn sem Kristján leigði, hvítan Pontiac og keyrðum sem leið lá eftir I-4 til Orlando. Kíktum við inn á hótel og löbbuðum svo yfir götuna til að næra okkur. Í gær var svo farið og við sinntum smá viðskiptum og svo þegar heim var komið fórum við í sundlaugina og heita pottinn. Við eldri helmingurinn höfðum gert það deginum áður með góðum árangri. Í gærkveldi rigndi svo eins og hellt væri úr fötu og eldingar dönsuðu um himininn með tilheyrandi söng 🙁 Í dag er skýjað og vindur alla vega svona við fyrstu athugun. Við þurfum að fara að losa herbergin og fara að huga að ferð niður til St. Pete þar sem við ætlum að eyða næstu 5 dögum vonandi í sól og blíðu. Spáin fyrir næstu daga er hins vegar okkur ekki alveg hliðholl, því að kuldinn úr miðríkjunum er að herja aðeins á Florida þessa dagana en spáð er minni hita en hefur verið. Það er kannski ágætt fyrir okkur kuldakreisturnar frá Íslandi en hitinn á að fara niður í 15°c. Fyrirhugað er að fara í Bush Gardens sennilega á morgun, fimmtudag en það kemur allt í ljós. Heyrumst síðar 😉
Little town of Stuart
Við rötuðum á fornar slóðir í leit að hóteli í gærkveldi. Við höfðum gist í þessum bæ og á þessu hóteli þegar við vorum á ferðinni 2006, ég veit ekki hvort hægt sé að kalla bæinn „little“ en mér fannst þetta eitthvað svo flottur haus 🙂 Hvað með það við gistum hér í nótt og í gærkveldi fórum við á „Perkins“ að fá okkur að borða og auðvitað borðuðum við næstum yfir okkur. Við höfðum hringt heim í gærkveldi og heyrt í spenntum ferðalöngum og svo aftur í morgun. Eftir morgunmat og svoleiðis höldum við ferðinni áfram meðfram ströndinni og upp til Canaveral og þaðan beint yfir til Orlando. Þar tékkuð við okkur inn á hótelið okkar þar sem við eyðum næstu tveimur dögum í eitthvað skemmtilegt. Gormarnir koma svo í kvöld með flugi og ætlum við að taka á móti þeim. Kristján ætlar að leigja bíl svo að það verði nóg pláss fyrir alla. Vel á minnst við fengum annan eins eðalkagga, Dodge Grand Caravan nema bara bláan í þetta skipti. Jæja nú er ég að hugsa um að hafa mig á stað í morgunmatinn hér á Best Western í Stuart, svo þar til næst…. heyrumst 😉