Við erum svo sannarlega búin að njóta hér í Eagle Creek, legið í sundlauginni, borðað góðan mat og slappað af. Farið í einstaka rannsóknarferðir og sinnt smá viðskiptum. Í gær fórum við svo í Downtown Disney með litlu músina að sjá Mikka og Mínu og komum við í Congo River golf að kíkja á krókódíla sem þar eru. Þetta var mjög viðburðarlegur dagur sérstaklega fyrir yngsat meðlim fjölskyldunnar.
Komin til Flórída
Eftir langt en samt svo stutt flug sem gekk vel í alla staði og hafa fengið tvær glæsilegar eðal bifreiðar erum við komin í þennan glæsi bústað í Eaglecreek. Gróa Mjöll var mjög kát í fluginu, svaf helming af leiðinni og hafði gaman hinn hlutan. Við höfum haft það mjög gott, sinnt viðskiptum, legið í bleyti og annars bara slappað af. Hér koma nokkrar myndir frá síðustu dögum 😉
Komnar heim á Íslandið góða
Nú erum við bara komnar heim í rokið og rigninguna, vá hvað það er hægt að hafa mikið rok eða þannig. Flugið heim gekk ágætlega þrátt fyrir brjálað veður hér heima, aðeins hristingur og smá seinkun. Það gekk líka vel að komast í gegnum tollinn og að fá töskrunar þrátt fyrir þörf ameríkana að kíkja í töskurnar. Þeir höfðu nú ekki einu sinni fyrir því að loka annarri töskunni minni heldur límdu hana bara aftur (sjá mynd) og í hinni höfðu þeir endurraðað, þeim fannst ég kannski ekki nógu góð í þessu en ekkert vantaði sem er best 😉 Í gær notuðum við tækifærið og fórum með lestinni niður í bæ og gengum um í mjög svo fallegu veðri, hér á eftir koma svo nokkrar myndir. Við erum mjög þreyttar en samt ánægðar með þessa ferð, síðasta myndin af þessum þreyttu kellum er svo tekin í lounsi í Boston þar sem við gátum slappað smá af og fengið okkur hressingu áður en við flugum heim 🙂