Mér finnst vikurnar líða helst til of hratt þessa dagana, alltaf bara komin helgi 🙂 Síðasta vika gekk eins og vanalega, vinna, fara í ræktina, heim að elda, þvo o.s.frv. og svo er komið kvöld eða er þetta bara ekki eins og það á að vera. Við erum í átaki í Sólbrekku með fullt af öðrum fyrirtækjum „hjólað í vinnuna“ eða „allir á iði“ held ég að það heiti, þannig að allir keppast við að hjóla eða ganga í vinnuna. Ég hef nú bara hjólað einu sinni í vinnuna og var það á föstudaginn. Það var alveg ágætlega hressandi, rigning og rok, þegar ég var búin að vinna þá hjólaði ég lengri leiðina heim, sem sagt hjólaði ég 5 km þann dag. Ég hef nú bara hlaupið á bretti eða tekið spretti á skíðatækinu í ræktinni en veit ekki hvort að það teljist með í þessu átaki… 😉 Núna um helgina og í síðustu viku hafa karlmenn heimilisins verið að leggja leiðslur út um allt hús, svo að við förum að geta nýtt okkur ljósleiðaratenginguna sem kom hér í hús fyrir einhverjum tíma síðan. Við förum þá að fá frábærlega skýrt sjónvarp, háhraða nettengingu og svo fer heimasíminn að virka en hann hefur ekki virkað í eins og tvær vikur. Tengdó hefur verið hjá okkur í dag og í gær og erum við öll að fara í matarboð til Eddu og Gumma í Skipholtið á eftir, hlakka til að fá eitthvað gott í gogginn hjá þeim. Ég fer vonandi bráðlega að geta sett inn myndirnar sem ég hef verið að lofa, hef ekki verið nettengt í tölvunni minni svo ég hef ekki komist í myndirnar sem eru vistaðar í henni 🙁 Jæja nú er ég hætt í bili en vel á minnst KR vann Grindavík í gær og svo urðu Man United Englandsmeistarar rétt áðan, áfram Man U hey hey
Greinasafn fyrir flokkinn: Daglegt líf
Bara komin maí
Enn ein vikan á enda og bara komin maí, sumarið er framundan með sól og hita vonandi 😉 Á miðvikudagskvöldið héldum við gellurnar á Sólbrekku upp á 500 brosa hátíðina en þá höfðum við safnað 500 brosum. Brosunum söfnuðum við með því að gefa hverri annarri bros og hrósa í leiðinni fyrir eitthvað vel heppnað sem við höfðum gert, þannig æfðum við okkur í SMTinu sem við höfum verið að innleiða í leikskólanum. Þetta hefur gengið vel, við kennum börnunum ýmsar reglur og hrósum þeim og gefum bros þegar þau eru að standa sig. Þegar börnin hafa svo safnað ákveðnu magni af brosum gerum við eitthvað skemmtilegt eins og að fara í strætó, halda ball eða poppa. Skemmtilegast er auðvitað að fara í strætó, skrítið og þó ekki… börn fara frekar lítið í strætó nú til dags 🙁 En hvað með það ég ætla ekki að fara út í þessa umræðu en segja frá hátíðinni sem var bara mjög vel heppnuð alla vega skemmtum við okkur mjög vel. Við hittumst við Hallgrímskirkju nokkrar og gengum sem leið lá að Vínbarnum og fengum okkur drykk og kjöftuðum smá en héldum síðan fótgangandi til Dísu á Ægisíðunni þar sem við drukkum meira, borðuðum glæsilegar veitingar og kjötuðuum enn meira. Þar bættust einn fleiri í hópinn svo að þetta var bara skemmtilegt. Klukkan var orðin langt yfir miðnætti þegar við héldum heim á leið sælar og ánægðar 😉 Á fimmtudaginn var ég svo tekinn eða plötuð af mínum eina sanna eiginmanni sem var nýkomin frá Noregi, kom reyndar degi áður. Þannig var að ég hafði pantað á Saga Boutique hjá Flugleiðum og átti hann að taka við pakkanum og borga, hálsmen og eyrnalokka. Ósköp auðvelt fannst mér en þegar ég spurði um pakkann lét hann mig hafa einn kassa, ok ég hélt að þetta væri í tveimur kössum en kannski hafði það breyst. Ég opnaði kassann og í honum var hringur, mín stökk upp á nef sér í hvelli, hvaða bull er þetta, varstu látinn hafa þetta, tékkaðir þú ekki á hvað þú fékkst og svo fram eftir götunum. En hugsaði hvernig í andsk… get ég skipt þessu, jú Edda fer eftir mánuð en þetta er nú ansi fallegur hringur, já en ég bað um hálsmenið og eyrnalokkana, hvað er í gangi eiginlega, Þorvaldur eitthvað laumulegur, ég spurði fékkstu virkilega ekkert meira.. bara kvittun var svarið. Meiri pælingar um hvernig þetta gengi fyrir sig, er hægt að skila í Reykjavík, ógeðslega fallegur hringur væri til í að eiga hann en hálsmenið og eyrnalokkarnir… vá. Þá hló marbendill hinum megin við borðið og henti til mín restinni úr pokanum og ég upplifði það að vera tekinn smávegis. Fannst þetta bara fyndið eða þannig en ég hélt hringnum flotta og því sem ég hafði pantað 🙂 Alltaf gaman að vera plataður je right.. en þetta var nú bara saklaust, ekki látinn gera eitthvað sem mér er á móti skapi en hvað maður er nú samt fljótur að stökkva upp á nef sér. Nóg í bili í þetta sinn, verð vonanid duglegri að skrifa færslu, hef verið að eyða tíma á facebookinu, það er meiri tímaþjófurinn en skemmtilegur þó. Segi kannski næst frá breytingunum hér á heimilinu og símaleysinu, set inn myndirnar sem ég lofaði 🙁
Skemmtileg helgi
Nú er þessi skemmtilega helgi búin og komin ný vinnuvika. Ég hef nú ekki verið neitt sérlega dugleg að skrifa færslur hérna, það er eitthvað búið að vera svo mikið að gera eða þannig 🙂 Enn hérna koma smá fréttir af okkur. Við hjónin eyddum helginni á Laugarvatni ásamt skólasystkinum Þorvaldar og mökum þeirra í 30 ára endurfundunum. Við mættum á föstudaginn um kl. 20 og voru þá þó nokkrir mættir á svæðið, hressir að vanda. Helgin leið svo með fjöri, sögum, dansi m.a. magadansi sem ég stjórnaði aðeins, blak, yatzy, góðum mat og drykk og svo var auðvitað farið í heita pottinn. Var þetta hin besta skemmtun og vil ég fyrir hönd okkar hjóna þakka öllum sem sáu sér fært að mæta fyrir frábæra skemmtun og samveru 😉 Þorvaldur er svo á leið til Noregs í fyrramálið og hittir hann Kristján í flugstöðinni en hann kemur heim frá NY í fyrramálið, svo styttist nú óðum í ferðina hjá Eddu og Gumma en þau fara til Mexikó eftir tæpan mánuð. Þannig að það er nú bara ég eina manneskjan á heimilinu sem ekki er á faraldsfæti 🙁 Það lagast kannski bara í sumar, því ég er að reyna að skipuleggja ferð með mínum eina sanna ef hann getur farið í frí á sama tíma og ég… Jæja ég læt þessu lokið í bili, set kannski bara nokkrar myndir inn af 30 ára endurfundunum á næstunni 😉