Smá fréttir af Miðbrautinni

Það er sko búið að vera sannkallaður latibær í gangi hér hjá mér í blogmálum undanfarið. En nú verður maður bara að setjast niður og skrifa, ef maður vill að einhver nenni að lesa það sem maður er að skrifa. Ýmislegt hefur gerst síðan síðast, gestir frá Danmörku, sumarfríið klárast, húsið tekið í gegn að utan og íbúðin að innan, Edda og Gummi að flytja svo eitthvað sé nefnt 😉 Núna erum við rúmlega hálfnuð með að taka íbúðina að innan og vonumst til að klára í enda ágúst, set nánari fréttir og kannski myndir fljótlega. Þar til þá…. bless