Hér koma myndir frá fyrsta deginum, ferðadeginum texti kemur síðar 😉
Síðasta færslan úr afmælisferðinni
Nú er bara komið að heimferðardegi, við hefðum nú alveg verið til í að vera nokkra daga hér í sveitinni því að húsið sem við erum í er í raun út í sveit. Æðislegur staður en pínu langt frá öllu sem við höfum verið að sækja en við höfum látið okkur hafa það. Í gær vorum við boðin til vina okkar hér í Flórída í þakkagjörðarmáltíð og við ókum sem leið lá til Safety Harbor sem liggur við Tampaflóann. Þegar komið var á staðinn var öll fjölskylda Chris og Allen mætt en við höfðum bara hitt þau og soninn Patrik áður. Gummi og Edda voru að hitta þau öll í fyrsta skipti og þau fögnuðu okkur eins og við hefðum þekkt þau alla ævi en svona er þetta nú bara hér í Ameríkunni 🙂 Þetta var sko kalkúnaveisla í lagi með öllu tilheyrandi og ekki skemmdi að Cameron tengdasonur Chris og Allen átti 30 ára afmæli. Við fengum að syngja afmælissöng fyrir hann á ensku og íslensku. Gróa Mjöll lék sér svo við dætur hans og Lindsey 2 og 4 ára sem og þrjá hunda og ekki skemmdi það nú fyrir. Þetta var bara skemmtilegt og alltaf gaman að hitta þau. Í dag er svo bara að pakka dótinu sínu og fara og eyða nokkrum klukkutímum áður en við förum út á flugvöll til að fara heim í kuldan og venjulegu tilveruna. Við eigum fullt af góðum minningum og gerðum fullt af skemmtilegum hlutum og nú er bara að plana næstu ferð 😉
Síðasta færslan úr Serenade of the Seas
Jæja nú er þessi hluti afmælisferðarinnar á enda, við förum í land í fyrramálið. Við erum búin að pakka og setja töskurnar fram á gang svo að þær séu færðar frá borði og við sótt þær í komusalnum. Tveir síðustu dagar hafa farið í afslappelsi, sólböð, át, hreyfingu og leikhússýningar. Gróa Mjöll hefur verið dugleg að fara í klúbbinn sinn og talar ensku eins og innfæddur, það er búið að vera virkilega gaman að fylgjast með henni hvað hún skemmtir sér vel. Þessi tími hér um borð hefur verið æðislegur, við höfum getað nýtt okkur það sem boðið er upp á, þó sumir hafi verið duglegri við það en aðrir 😉 Veðrið hefur leikið við okkur alla ferðina sól og hiti, stundum hefur verið helst til of heitt en við kvörtum ekki. Stundum hafi verið meiri veltingur en það hefur ekki skemmt fyrir neinum, bara yndislegt bara að láta rugga sig í svefn 🙂 Hér á eftir koma nokkrar myndir sem teknar hafa verið hér á skipinu.