Ég gleymdi alveg að setja inn í gær að hann Gummi minn kæri átti afmæli, svo ég verð að bæta úr því í dag og syngja fyrir hann: „Hann átti afmæli í gær, hann átti afmæli í gær, hann átti afmæli hann Gummi, hann átti afmæli í gær“ Knús og kossar frá Tengdó á Miðbrautinni elsku Gummi 😉
Nýtt ár ný markmið
Jæja ég hef sko ekki verið að standa mig neitt sérlega vel í þessu bloggi og skil alveg að enginn nenni að fara inn á síðuna. En með nýju ári koma ný markmið og eitt af því er að vera duglegri að segja frá lífi okkar hér á Miðbrautinni og kannski setja inn eins og eina og eina mynd 🙂 En þessa dagana gengur allt sinn vanagang hér, allir í vinnu og sumir vinna meira en aðrir, við reynum að kíkja í ræktina öðru hvoru en annars erum við bara hér heima eitthvað að dunda okkur. Engin utanlandsferð hjá gömlu í býgerð en maður veit aldrei. Edda og Gummi ætla að skreppa til Boston í mars en Gummi er núna á Kanarí í vinnunni ekki að sóla sig hahaha 😉 Edda er í sálfræðinni á fullu og vinnur í Sólbrekku, Kristján er að vinna í Orkuveitunni og skráði sig í hagfræði núna með vinnunni. Ég er á fullu að vinna í Sólbrekku og Þorvaldur í Elkó, svo að allt er við það sama. Mamma og pabbi hress á Hraunbrautinni fara einstaka sinnum ef veður leyfir á skutlunum um nágrennið. Þar til næst lifið í lukku en ekki í …..
Gleðileg jól
Sendi öllum ættingjum og vinum bestu jóla og nýársóskir með kæru þakklæti fyrir allt gamalt og gott 🙂