Föst í tímavélinni

Las í einni ákveðinni gestabók af barnasíðu að minnt var á hvort viðkomandi væri föst í tímavélinni og datt þá í hug að ég væri það líka. Ég er þó aðeins skárri en viðkomandi því ég á færslu síðan í mars, engin keppni Hanna en ákvað að minnast aðeins á þetta 😉 Jæja lífið gengur svona sinn vanagang hér á Miðbrautinni, allir í vinnu og fá útborgað hahaha, samt ekkert grín í kreppunni. Við hjónin og sonur okkar kær ákváðum að gefa henni, þ.e. kreppunni, langt nef og erum að plana ferð til Ameríku en ekki hvað. Við förum 9. júlí til Boston og ætlum að keyra til Minneapolis og komum heim að morgni 25. júlí. Við erum orðin svolítið spennt fyrir þessu og erum búin að gera beinagrind sem farið verður eftir. Bara skemmtilegt 🙂 En eins og ég sagði þá gengur lífið sinn vanagang, eftir að við urðum ein í kotinu þá útbjó ég mér dyngju úr gamla saumaherberginu (var saumaherbergið hennar mömmu fyrir þá sem ekki vita). Ég get s.s. bara verið þar og lokað þess vegna ef okkur verður nú sundurorða hjónakornunum hahaha, allt við hendina nema kannski vantar þar inn er vínkælir…….. ég er svo dugleg í því nefnilega. En loksins er ég búin að fá aðstöðu fyrir mitt dót og get bara draslað til í föndrinu og þarf ekki að taka saman en það er alltaf voða snyrtilegt 😉 Jæja nú er ég að spá í að fara að hætta þessu masi og reyna að drífa mig í ræktina, sem ég hef ekki verið alltof dugleg að mæta í. Auf wiedersehen…………….

Fréttir af Miðbrautinni

Jæja nú er orðið langt síðan síðast, þrátt fyrir góð fyrirheit um dugnað í skrifum þá hef ég ekki verið að standa mig í því. Þó nokkrar fréttir af genginu, fyrst þá erum við hjónakornin að verða ein í hreiðrinu. Kristján er að flytja frá okkur og á Austurströndina, í næsta nágrenni, eiginlega við hliðina á Eddu og Gumma sem fluttu á Nesið í febrúar. Við höfum sem sagt verið í flutningum, innkaupum á innanstokksmunum og fleiru, dittað að hinu og þessu eða bara því sem að fylgir flutningum. En nú fæ ég bráðum herbergi til að setja allt mitt hafurtask í og get bara dreift mér án þess að vera alltaf að taka saman 😉 Gummi hefur verið á faraldsfæti, fór til Kanarí tvisvar sinnum að vinna og þau skötuhjúin eru á leið til Boston eftir tvær vikur, smá öfund í gangi að minni hálfu. Ég er alltaf í huganum einhvern veginn hálf partinn í útlandinu en ekkert hefur verið planað í þá veru, er ekki annars kreppa? Ég veit ekki, mér finnst alltaf fullt að gera alls staðar ef ég fer bæjarleið en kannski eru allir hinir líka þá að sinna erindum og viðskiptum 🙂 Jæja ég er að hugsa um að láta þetta vera gott í bili, svo þar til næst……

Kristján á afmæli í dag

Jæja það er nú orðin 26 ár síðan að ég fór upp á fæðingardeild og eignaðist frumburðinn minn hann Kristján. Vil ég að því tilefni syngja fyrir hann þennan söng: „Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag, hann á afmæli hann Kristján, hann á afmæli í dag“ Til hamingju með daginn elsku drengurinn minn og megir dagurinn vera þér ánægjulegur 🙂